Í hamagangnum þegar Bayern Munchen hampaði bikarnum fyrir sigur í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi tapaði Mario Mandzukic gullpeningnum sínum.
Mandzukic var nýbúinn að fá verðlaunapeninginn um hálsinn þegar bikarinn fór á loft og hoppaði og trallaði í fögnuði. Við það slitnaði peningurinn frá og hvarf.
Franck Ribery áttaði sig á að peningurinn var farinn og benti honum á þetta. Á endanum fékk hann þó nýjan pening svo allir fóru sáttir að sofa.
Hér að neðan er myndband af atvikinu þegar peningurinn hverfur.



