Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 26. maí 2013 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Sky 
Nýtt merki Everton veldur úlfúð
Nýja merkið.
Nýja merkið.
Mynd: Everton
Nýtt merki Everton hefur valdið úlfúð meðal stuðningsmanna liðsins en á því er búið að fjarlægja setninguna ,,nil satis nisi optimum," sem hefur verið á búningum liðsins síðan árið 1991 en hún þýðir: ,,Ekkert nema það besta er nógu gott."

Forráðamenn félagsins segja að nýja merkið hafi verið hannað að höfðu samráði við marga hluthafa og einnig stuðningsmenn liðsins.

Þrátt fyrir það er merkið gríðarlega mikið gagnrýnt í netheimum og undirskriftarsöfnun náði í 6000 undirskriftir gegn merkinu á fyrstu klukkutímunum eftir að merkið var fyrst birt opinberlega.

,,Fyrri útgáfa merkisins sem var gerð fyrir 13 árum síðan var oft misskilin, og þar vantaði lykilatriði eins og stofnár félagsins og nafnið," sagði á vef Everton um ástæðu breytingarinnar.

,,Á meðan tækninni fleygir fram hefur þetta aukist. Í sjónvarpi, á vefsíðum og snjallsímum. Merkið var alltof oft sett vitlaust fram."
Slapp
banner
banner