Heimild: Sporting Life
Miðvörðurinn Martin Skrtel hjá Liverpool segir að hann myndi skoða það alvarlega ef eitthvað félag myndi sýna sér áhuga. Skrtel missti sæti sitt í byrjunarliðinu til Jamie Carragher í vetur og þó Carragher sé búinn að leggja skóna á hilluna veit Slóvakinn ekki hvað hann mun gera.
Liverpool hefur verið sterklega orðað við Kolo Toure hjá Manchester city og einnig Kyriakos Papadopoulos hjá Schalke sem spila sömu stöðu.
,,Ég hef ekki fengið nein tilboð," sagði Skrtel við Dennik Sport í heimalandinu. ,,En ef einhver kemur og sýnir mér áhuga, þá mun ég skoða það alvarlega."
,,Félagið hefur mest að segja í þessu tilfelli því ég er samningsbundinn þeim. Þar fyrir utan er ég ekki að segja að ég myndi fara sama hvað það kostar. Mér þykir leiðinlegt hvað gerðist á tímabilinu. En ég hef verið hérna í fimm og hálft ár og komið mér í góða stöðu hérna."



