Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 26. maí 2015 10:41
Magnús Már Einarsson
Aðstoðarþjálfari Real Madrid að taka við Derby
Mynd: Getty Images
Paul Clement, aðstoðarþjálfari Real Madrid, verður næsti knattspyrnustjóri Derby County samkvæmt frétt BBC.

Steve McClaren var rekinn frá Derby í gær en liðinu mistókst að komast í umspil um sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Hinn 43 ára gamli Clement hefur verið aðstoðarmaður Carlo Ancelotti hjá Real Madrid undanfarin tvö ár.

Clement var áður í þjálfaraliði Chelsea en hann vann síðan með Ancelotti hjá PSG og Real Madrid.

Clement hefur ekki verið áður knattspyrnustjóri en hann mun nú þreyta frumraun sína með Derby.
Athugasemdir
banner