Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   þri 26. maí 2015 13:30
Magnús Már Einarsson
Artur Boruc ver mark Bournemouth í úrvalsdeildinni
Mynd: Getty Images
Bournemouth hefur gert eins árs samning við pólska markvörðinn Artur Boruc.

Boruc var í láni hjá Bournemouth frá Southampton á nýliðnu tímabili en hann hjálpaði liðinu að vinna sér sæti í ensku úrvlasdeildina.

Boruc hefur nú samið við Bournemouth til eins árs eftir að samningur hans hjá Southampton rann út.

„Ég hef aldrei á ævi minni séð hóp sem leggur jafn mikið á sig og sinnir starfinu af eins mikilli fagmennsku," sagði Boruc.

Boruc er 35 ára gamall en hann spilaði 50 leiki með Southampton á ferli sínum þar.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner