Varnarmennirnir Kolo Toure og Andre Wisdom eru búnir að skrifa undir nýja samninga við Liverpool.
Félagið er ekki búið að gefa upp lengd samninganna en talið er líklegt að Toure fái eins árs framlengingu á meðan samningur Wisdom er líklega til þriggja ára.
Félagið er ekki búið að gefa upp lengd samninganna en talið er líklegt að Toure fái eins árs framlengingu á meðan samningur Wisdom er líklega til þriggja ára.
Toure er 34 ára gamall og hefur spilað 32 deildarleiki frá komu sinni til félagsins fyrir tveimur árum.
Wisdom var lánaður til West Brom á tímabilinu þar sem hann kom mikið við sögu og spilaði 24 deildarleiki.
Liverpool er duglegt að framlengja samninga leikmanna en hinn 19 ára gamli Jordon Ibe gerði 5 ára samning við félagið í síðustu viku og Jon Flanagan framlengdi um eitt ár.
Athugasemdir