Manchester United hefur verið á höttunum eftir Nicolas Otamendi í nokkur ár og nú hefur umboðsmaður hans, Eugenio Lopez, staðfest að argentínski varnarmaðurinn vill yfirgefa Valencia.
Otamendi er 27 ára gamall og á 18 landsleiki að baki fyrir Argentínu. Hann kom til Valencia í fyrra eftir fjögur ár hjá Porto og hefur staðið sig með prýði og skorað í sjötta hverjum leik.
Otamendi er 27 ára gamall og á 18 landsleiki að baki fyrir Argentínu. Hann kom til Valencia í fyrra eftir fjögur ár hjá Porto og hefur staðið sig með prýði og skorað í sjötta hverjum leik.
„Nico vill yfirgefa Valencia og ætlar að gera hvað sem hann getur til þess," sagði Lopez í útvarpsviðtali við Radio Valencia Cadena Ser.
„Nicolas sagði Amadeo Salvo (framkvæmdastjóri Valencia) frá þessu fyrir tveimur mánuðum. Það er mikilvægt að félagið virði vilja leikmannsins."
Athugasemdir