Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 26. maí 2016 13:00
Magnús Már Einarsson
Liverpool gerir tilboð í portúgalskan landsliðsmann
Raphael Guerreiro.
Raphael Guerreiro.
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur lagt fram tilboð í vinstri bakvörðinn Raphael Guerreiro en hann leikur með Lorient í Frakklandi.

Hinn 22 ára gamli Guerreiro er í portúgalska landsliðshópnum sem mætir Íslandi á EM í næsta mánuði.

„Enginn vill sjá Raphael fara, sérstaklega forsetann," sagði Alex Hayes varaforseti Lorient.

„Hann fer einungis ef félag kemur með tilboð sem við getum ekki hafnað. Í augnablikinu hafa fjögur stór erlend félög lagt fram tilboð en þar á meðal eru Liverpool og Dortmund."

„Við erum samt rólegir. VIð þurfum ekki að selja til að rétta af fjárhaginn."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner