Tottenham sigraði Kitchee 4-1 í vináttuleik sem fór fram í Hong Kong í dag.
Þetta var síðasti leikur Tottenham áður en leikmenn liðsins fá að fara í sumarfrí.
Þetta var síðasti leikur Tottenham áður en leikmenn liðsins fá að fara í sumarfrí.
Suður-Kóreumaðurinn Heung-Min Son skoraði fyrsta markið á 17. mínútu en honum var vel fagnað af áhorfendum í Hong Kong í dag.
Vincent Janssen bætti öðru marki við fyrir leikhlé.
Í síðari hálfleik bætti varamðurinn Harry Kane við marki. Kitchee minnkaði muninn í 3-1 áður en hinn ungi Kazaiah Sterling skoraði fjórða mark Tottenham.
Athugasemdir