Mario Balotelli ætlar að skreppa í tveggja vikna frí áður en hann ákveður framtíð sína í fótboltanum.
Hinn 26 ára gamli Balotelli skoraði 15 mörk í 23 leikjum með franska liðinu Nice á nýliðnu tímabili.
Balotelli er áfram samninsbundinn Nice en hann hefur ekki ákveðið hvort hann leiki áfram með liðinu eða reyni að róa á önnur mið.

„Núna ætla ég að slökkva á öllu í tvær vikur," sagði Balotelli í ræðu á viðburði í heimabæ sínum Brescia.
„Ég ætla í sumarfrí og þar ætla ég ekki að hugsa um neitt. Ég ætla ekki einu sinni að horfa á úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Síðan skoða ég allt. Einn daginn vil ég enda ferilinn í heimabæ mínum en ég er ennþá ungur."
Athugasemdir