Manchester City ætlar að byrja sumarið með krafti á félagaskiptamarkaðinum því félagið er að landa Bernardo Silva sem sló í gegn með Mónakó á nýliðnu tímabili.
Portúgalski miðjumaðurinn flaug til Englands í gærkvöldi og er í læknisskoðun hjá Manchester City. Goal.com og Daily Mail greina bæði frá þessu í dag.
Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en Daily Mail segir að það hljóði upp á 60 milljónir punda.
Silva átti stóran þátt í því að Mónakó varð franskur meistari og fór í undanúrslit í Meistaradeildinni.
Silva er 22 ára gamall en hann kom til Mónakó frá Benfica fyrir tveimur árum síðan.
Athugasemdir