Manchester City er við það að ganga frá kaupum á miðjumanninum Bernardo Silva.
Silva mun skrifa undir fimm ára samning við City síðdegis í dag en Sky greinir frá þessu. Líklegt er að kaupverðið sé í kringum 60 milljónir punda.
Silva hefur verið líkt við nafna sinn David Silva hjá Manchester City en þeir þykja vera svipaðir á velli.
Bernardo SIlva er portúgalskur landsliðsmaður en hann fór á kostum þegar Mónakó varð franskur meistari á nýliðnu tímabili.

Manchester United hafði einnig sýnt Silva áhuga en City er nú að landa honum.
Athugasemdir