Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 26. maí 2017 19:30
Dagur Lárusson
Herrera: Griezmann er frábær leikmaður
Griezmann er sterklega orðaður við United.
Griezmann er sterklega orðaður við United.
Mynd: Getty Images
Ander Herrera, leikmaður United, viðurkennir að hann væri virkilega til í að fá Antoine Griezmann til félagsins í sumar.

Herrera er hrifinn af hæfileikum þess 26 ára leikmann og segir að hann myndi taka á móti honum með opnum örmum.

„Griezmann er frábær leikmaður, stórkostlegur”, sagði Herrera

„Hann er stjarna, öll lið í heiminum væru til í að fá hann í sínar raðir”.

Herrera segir að hann myndi setja Griezmann í sama flokk og Ronaldo og Messi en tekur þó fram að frakkinn er ennþá leikmaður Atletico og hann virði það

„Hann er í sama flokki og Ronaldo og Messi, ég hef sagt það áður. Hann er samt sem áður ennþá leikmaður Atletico og ég vil virða það”.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner