Króatíski landsliðsmaðurinn, Mario Mandzukic, skrifaði í gær undir glænýjan samning við Juventus.
Mandzukic kom til Juventus árið 2015 eftir stutta dvöl hjá Atletico Madrid.
Mandzukic hefur ekki verið að spila sem framherji undir Allegri hjá Juventus á þessu tímabili og því var ekki vitað hvort að hann myndi skrifa undir nýjan samning.
Nýji samningurinn gildir til ársins 2020 og því virðist sem svo Króatinn sé ekki á leiðinni frá félaginu á næstunni.
Athugasemdir