Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 26. maí 2017 12:39
Magnús Már Einarsson
Zabaleta til West Ham (Staðfest)
Kveður City.
Kveður City.
Mynd: Getty Images
West Ham hefur gert tveggja ára samning við varnarmanninn Pablo Zabaleta.

Hinn 32 ára gamli Zabaleta gengur formlega í raðir West Ham þann 1. júlí en þá rennur samningur hans við Manchester City út.

„Stundum er ný áskorun það sem þú þarft sem einstaklingur og leikmaður," sagði Zabaleta eftir undirskrift hjá West Ham.

Zabaleta kom til Manchester City frá Espanyol á 6,5 milljónir punda árið 2008. Síðan þá hefur hann spilað 333 leiki með City og orðið enskur meistari tvívegis með liðinu.

Á nýliðnu tímabili var Zabaleta ekki ofarlega í röðinni hjá Pep Guardiola en hann spilaði samtals 22 leiki í öllum keppnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner