lau 26. maí 2018 16:45
Ívan Guðjón Baldursson
3. deild: Augnablik og Dalvík/Reynir með sigra
Hilmar Rafn Emilsson, fyrrverandi leikmaður Hauka og Vals, skoraði fyrir Augnablik.
Hilmar Rafn Emilsson, fyrrverandi leikmaður Hauka og Vals, skoraði fyrir Augnablik.
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
Augnablik og Dalvík/Reynir unnu leiki sína á heimavelli í 3. deildinni í dag og eru bæði með sex stig eftir þrjár umferðir.

Augnablik hafði betur í fjörugum leik gegn Sindra þar sem gestirnir klúðruðu vítaspyrnu á 64. mínútu og misstu mann af velli með rautt spjald skömmu síðar.

Dalvík/Reynir setti þá þrjú gegn Ægi frá Þorlákshöfn, sem er með þrjú stig eftir sigur gegn Vængjum Júpíters í fyrstu umferð.

Augnablik 3 - 2 Sindri
1-0 Hilmar Rafn Emilsson ('5)
2-0 Guðjón Máni Magnússon ('26)
2-1 Tómas Leó Ásgeirsson ('57)
3-1 Arnór Brynjarsson ('60)
3-2 Erlendur Rafnkell Sveinsson ('68)
Rautt spjald: Mirza Hasecic, Sindri ('65)

Dalvík/Reynir 3 - 0 Ægir
1-0 Markaskorara vantar ('7)
2-0 Markaskorara vantar ('19)
3-0 Markaskorara vantar ('90)

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner