Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 26. maí 2018 20:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Hann er ekki að fara að spila fleiri leiki fyrir Liverpool"
Karius með önnur hræðileg mistök
Mynd: Getty Images
„Hann getur farið heim, hann er ekki að fara að spila fleiri leiki fyrir Liverpool," sagði íþróttafréttamaðurinn Guðmundur Benediktsson er hann lýsti þriðja marki Real Madrid gegn Liverpool í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í kvöld.

Gareth Bale sem skoraði eitt besta mark í sögu Meistaradeildarinnar til að koma Real í 2-1 skoraði þriðja markið.

Bale átti skot langt utan af velli sem Karius átti að grípa, en hann missti knöttinn í netið.

Þetta eru stóru mistökin sem Karius gerir í kvöld.

Smelltu hér til að sjá þriðja markið.

Karius hefur fengið traustið á seinni hluta tímabilsins og staðið sig nokkuð vel, en hefur verið hræðilegur í kvöld. Lítið er eftir af leiknum.
Athugasemdir
banner
banner