Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   lau 26. maí 2018 21:59
Gunnar Logi Gylfason
Meiðsli Salah eru alvarleg
Mynd: Getty Images
Jürgen Klopp hefur staðfest að meiðsli Mohamed Salah, sem hann hlaut í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í kvöld, séu alvarleg.

„Þetta eru alvarleg meiðsli. Mjög alvarleg meiðsli. Hann er á spítala á leið í röntgen myndatöku. Það er annaðhvort viðbeinið eða öxlin sjálf. Þetta lítur ekki vel út."

Stuðningsmenn Liverpool og Egyptalands bíða eflaust stressaðir eftir frekari fréttum þar sem óttast er að leikmaðurinn missi af HM í Rússlandi í sumar.

Salah hefur þrjár vikur til að verða tilbúinn fyrir Heimsmeistaramótið þar sem Egyptaland er í A-riðli með heimamönnum í Rússlandi, Úrúgvæ og Sádí-Arabíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner