Vålerenga 1 - 0 Lilleström
1-0 Bard Finne ('97)
1-0 Bard Finne ('97)
Vålerenga er komið upp í fjórða sæti norsku deildarinnar eftir nauman sigur gegn Lilleström.
Samúel Kári Friðjónsson lék allan leikinn á miðju Vålerenga en leikurinn var markalaus þar til seint í uppbótartímanum, þegar Bard Finne kom knettinum í netið á 97. mínútu.
Samúel Kári hefur verið að fá meiri og meiri spilatíma hjá norska félaginu og virðist vera kominn með byrjunarliðssæti.
Samúel er á leið á HM með íslenska landsliðinu.
Athugasemdir