Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 26. maí 2018 19:18
Gunnar Logi Gylfason
Salah farinn meiddur af velli í Kænugarði
Salah grét er hann fór af velli.
Salah grét er hann fór af velli.
Mynd: Getty Images
Mohamed Salah, skærasta stjarna Liverpool liðsins, er meiddur og hefur yfirgefið völlinn eftir hálftíma leik. Liverpool leikur þessa stundina í úrslitaleik Meistaradeildarinnar við Real Madrid.

Aðeins nokkrum mínútum áður hafði hann lent illa undir Sergio Ramos, fyrirliða Real Madrid og greinilegt að hann fann til í öxlinni.

Adam Lallana kom inn á fyrir Egyptann sem fór grátandi af velli.

Staðan er enn markalaus þegar þessi frétt er skrifuð.

Við munum setja inn frétt þegar fréttir berast af hversu alvarleg meiðslin eru hjá Egyptanum.
Athugasemdir
banner
banner