Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 26. maí 2018 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Zidane brást skemmtilega við mögnuðu marki Bale
Zidane á hliðarlínunni í kvöld.
Zidane á hliðarlínunni í kvöld.
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, virtist gáttaður þegar Gareth Bale skoraði annað mark Madrídinga í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Kænugarði í kvöld.

Real vann Liverpool 3-1 í úrslitaleiknum en innkoma Gareth Bale í leiknum breytti miklu.

Bale kom inn á í stöðunni 1-1, en hann skoraði tvö mörk og tryggði Real 3-1 sigur.

Fyrra mark Bale var einstaklega glæsilegt en hann gerði það með hjólhestaspyrnu.

Smelltu hér til að sjá markið hjá Bale.

Viðbrögð Zidane, sem skoraði sjálfur mörg glæsileg mörk á sínum leikmannaferli, við markinu á hliðarlínunni voru skemmtileg.

Þau má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner