Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fös 26. júní 2015 20:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild: Afturelding vann Sindra í fjörugum leik
Sindri mætti Aftureldingu
Sindri mætti Aftureldingu
Mynd: Gunnar Stígur Reynisson
Sindri 2-4 Afturelding
0-1 Sævar Freyr Alexandersson ('40)
0-2 Kristófer Örn Jónsson ('45)
1-2 Amadou Koulibaly Conde ('58)
1-3 Kristófer Örn Jónsson ('67)
1-4 Gunnar Wigelund ('80)
2-4 Sigurður Bjarni Jónsson ('90)

Fyrri leik dagsins í 2. deild karla lauk nú rétt í þessu.

Afturelding vann 2-4 útisigur gegn Sindra á Höfn í Hornarfirði.

Afturelding setti tvö mörk rétt fyrir leikhlé og var það Sindramönnum dýrkeypt.

Sindri minnkaði muninn í seinni hálfleik, en það var ekki nóg því Mosfellingar spíttu í og bættu við tveimur mörkum fyrir leikslok.

Sindri náði að klóra í bakkann á 90. mínútu, en þar við sat.

Afturelding fór upp í fjórða sæti með tólf stig eftir þennan sigur, á meðan að Sindri er áfram í sjötta sæti með tíu stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner