Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fös 26. júní 2015 09:30
Magnús Már Einarsson
Cech í læknisskoðun hjá Arsenal í dag
Mynd: Guðmundur Karl
Petr Cech, markvörður Chelsea, mun fara í læknisskoðun hjá Arsenal í dag.

Félögin hafa náð samkomulagi um kaupverð og Cech hefur sjálfur samið við Arsenal.

Ef að Tékkinn stenst læknisskoðun þá ætti hann að geta krotað undir samning strax í kjölfarið.

Cech hefur verið á mála hjá Chelsea síðan árið 2004 en nú er þeim kafla að ljúka.

Hann var varamarkvörður hjá Chelsea á síðasta tímabili á eftir Thibaut Courtois.
Athugasemdir
banner
banner
banner