Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 26. júní 2015 11:00
Magnús Már Einarsson
Clyne skrifar undir hjá Liverpool í næstu viku
Mynd: Getty Images
Nathaniel Clyne, hægri bakvörður Southampton, mun ganga til liðs við Liverpool í byrjun næstu viku.

Liverpool mun borga 12,5 milljónir punda fyrir Clyne en kaupverðið gæti hækkað upp í 15 milljónir punda ef að hann stendur sig vel.

Hinn 24 ára gamli Clyne er í sumarfríi í augnablikinu en hann fer í læknisskoðun í byrjun næstu viku og skrifar undir í kjölfarið.

Hann á að fylla skarð Glen Johnson sem er á förum frá Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner