Heimild: Football Espana
Martin Montoya, bakvörður Barcelona, er á leið til til Inter Milan á tveggja ára lánssamningi.
Inter mun borga eina og hálfa milljón evra fyrir lánssamninginn og mun geta keypt hann endanlega fyrir átta milljónir evra.
Inter mun borga eina og hálfa milljón evra fyrir lánssamninginn og mun geta keypt hann endanlega fyrir átta milljónir evra.
Montoya hefur átt erfitt með að vinna sér inn sæti í byrjunarliði Barcelona, þar sem að Dani Alves hefur verið á undan honum í goggunarröðinni.
Samkvæmt Marca, var Montoya nálægt því að yfirgefa félagið í janúar, en Luis Enrique stjóri Barcelona, vildi ekki láta hann fara þá, þar sem að framtíð Dani Alves hjá félaginu var í óvissu.
Athugasemdir