Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 26. júní 2015 14:10
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu glæsilegt mark Andreu á Akranesi
Andra Mist er fædd 1998 og leikur fyrir Þór/KA.
Andra Mist er fædd 1998 og leikur fyrir Þór/KA.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Íslenska U17 landslið kvenna tapaði 1-3 fyrir Englandi í lokakeppni EM á Akranesvelli í gær.

Andrea Mist Pálsdóttir fyrirliði skoraði eina mark Íslands en það var af glæsilegri gerðinni.

Smelltu hér til að sjá markið á vef RÚV

„Ég sá að markmaðurinn stóð fyrir miðju þannig að ég setti boltann bara í sammann (samskeytin)," sagði Andrea við RÚV.

Ísland leikur gegn Spáni á Kópavogsvelli á sunnudag en það verður síðasti leikur okkar liðs á mótinu þar sem ljóst er að það mun ekki komast upp úr riðlinum.
Athugasemdir
banner