Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 26. júní 2015 10:18
Magnús Már Einarsson
Staðfestir að Kolbeinn er á leið til Nantes
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Waldemar Kita, forseti Nantes, hefur svo gott sem staðfest að félagið sé að kaupa Kolbein Sigþórsson frá Ajax.

„Við erum að semja við sóknarmann sem kemur frá stóru félagi í Evrópu," sagði Kita við franska fjölmiðla í gær.

„Við höfum nú þegar náð samkomulagi við félagið og hann vill koma til Nantes."

Franskir fjölmiðlar segja engan vafa á að Kita sé þarna að tala um Kolbein en hann hefur verið orðaður við Nantes undanfarna daga.

Kolbeinn lýsti því yfir sjálfur á dögunum að hann vildi fara frá Ajax og takast á við nýja áskorun.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner