Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 26. júní 2015 10:30
Magnús Már Einarsson
Stoke hafnar tilboði frá Aston Villa í Begovic
Mynd: Getty Images
Stoke hefur hafnað tilboði frá Aston Villa í Asmir Begovic samkvæmt frétt Sky.

Begovic á einungis eitt ár eftir samningi sínum við Stoke en hann hefur rætt við félagið um nýjan samning.

Chelsea og Manchester United hafa sýnt Begovic áhuga undanfarna mánuði en Aston Villa hefur nú reynt að krækja í kappann.

Jack Butland tók stöðu Begovic í marki Stoke hluta af síðasta tímabili og því er mögulegt að sá síðarnefndi verði seldur í sumar ef rétta tilboðið kemur.
Athugasemdir
banner
banner
banner