Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 26. júní 2015 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Suður-Ameríku bikarinn: Guerrero skaut Perú í undanúrslit
Paolo Guerrero hefur leikið í brasilísku deildinni síðustu þrjú ár en hann á 27 deildarleiki að baki fyrir Bayern München.
Paolo Guerrero hefur leikið í brasilísku deildinni síðustu þrjú ár en hann á 27 deildarleiki að baki fyrir Bayern München.
Mynd: Getty Images
Bólivía 1 - 3 Perú
0-1 Paolo Guerrero ('20)
0-2 Paolo Guerrero ('23)
0-3 Paolo Guerrero ('74)
1-3 Marcelo Moreno ('84, víti)

Perú mætir heimamönnum í Síle í undanúrslitum Suður-Ameríku bikarsins eftir öruggan sigur á Bólivíu í nótt.

Paolo Guerrero kom Perú yfir með skallamarki og tvöfaldaði forystuna þremur mínútum síðar.

Perú var með yfirhöndina allan leikinn og fullkomnaði Guerrero þrennuna eftir varnarmistök í síðari hálfleik.

Marcelo Martins Moreno minnkaði muninn með marki úr vítaspyrnu þegar lítið var eftir af leiknum en það hafði lítil áhrif á lokatölurnar og lítið annað að gera fyrir leikmenn Bólivíu heldur en að pakka saman og halda heim.
Athugasemdir
banner
banner
banner