Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 26. júní 2015 11:38
Magnús Már Einarsson
Tara Macdonald í KR (Staðfest)
Agnes Þóra Árnadóttir hefur verið í marki KR að undanförnu.
Agnes Þóra Árnadóttir hefur verið í marki KR að undanförnu.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Markvörðurinn Tara E Macdonald hefur gengið til liðs við KR í Pepsi-deild kvenna.

Tara spilaði á síðasta tímabili með Hetti í 1. deildinni.

Hrafnhildur Agnarsdóttir markvörður KR fótbrotnaði á dögunum og miðjumaðurinn Agnes Þóra Árnadóttir hefur verið í markinu í síðustu leikjum liðsins.

KR fékk undanþágu til að fá nýjan markvörð þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn sé lokaður.

Tara hefur nú samið við félagið en hún gæti spilað sinn fyrsta leik gegn Selfsyssingum á mánudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner