Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 26. júní 2015 15:06
Magnús Már Einarsson
Tyrone Mings til Bournemouth (Staðfest)
Efnilegur.
Efnilegur.
Mynd: Getty Images
Bournemouth hefur keypt varnarmanninn Tyrone Mings frá Ipswich á átta milljónir punda en hann er þar með dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins

Skoski kantmaðurinn Ryan Fraser fer til Ipswich á láni sem hluti af samningnum.

Mings er 22 ára gamall vinstri bakvörður en hann var orðaður við Chelsea og Arsenal síðastliðinn vetur.

Mings krotaði undir fjögurra ára samning hjá Bournemouth sem er á leið í ensku úrvalsdeildina.

Mings hefur komist í fréttir fyrir góðmennsku utan vallar en hann bauð heimilislausum í mat á jólunum 2013 og í fyrra endurgreiddi hann stuðingsmönnum Ipswich treyjur með nafni hans aftan á eftir að hann skipti um treyjunúmer.
Athugasemdir
banner
banner
banner