Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 26. júní 2015 13:30
Elvar Geir Magnússon
Verður allt vitlaust, aftur? Valur mætir ÍA á sunnudag
Mynd: Valur
Valsmenn hafa birt skemmtilega auglýsingu fyrir leik liðsins gegn ÍA á sunnudag.

Fyrirsögnin á auglýsingunni er: Verður allt vitlaust, aftur?

Þar er vísað í frægan leik ÍA og Vals á Akranesi árið 1992 en í þeim leik var Bragi Bergmann dómari með hljóðnema á sér.

Mikill hiti var í leiknum og Bragi fékk óspart að heyra það eins og frægt er orðið.

Margar ógleymanlegar setningar fengu að fjúka eins og sjá má á auglýsingunni hér til hliðar.

Hér að neðan má sjá myndbandið úr þessum ótrúlega leik árið 1992.


Athugasemdir
banner
banner
banner