Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 26. júní 2015 13:00
Fótbolti.net
Vildarbörn fengu 406 þúsund eftir vítaspyrnukeppnina
Sveinbjörn, Dóra Elín og Magnús Már.
Sveinbjörn, Dóra Elín og Magnús Már.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
406.450 krónur söfnuðust í keppninni vítaskytta Íslands sem Fótbolti.net stóð fyrir þann 17. júní síðastliðinn.

Albert Guðmundsson stóð uppi sem sigurvegari í keppninni en yfir 300 þáttakendur tóku þátt.

Þátttakendur borguðu þátttökugjald sem rennur allt í gott málefni. Peningurinn fer til Vildarbarna Icelandair en upphæðin mun fara í að senda tvö langveik börn og fjölskyldur þeirra í draumaferðina.

Dóra Elín Atladóttir, hjá Vildarbörnum, tók við upphæðinni í morgun en Sveinbjörn Jónasson mótstjóri vítaspyrnukeppninnar og Magnús Már Einarsson ritstjóri Fótbolta.net afhentu upphæðina.

Þetta var annað árið í röð sem Fótbolti.net er með vítaspyrnukeppni en stefnt er á að hafa keppnina ennþá stærri á næsta ári.

Sjá einnig:
Myndaveisla: Albert Guðmundsson varð vítaskytta Íslands
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner