Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 26. júní 2016 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Candreva meiddur og missir af leiknum gegn Spáni
Candreva verður ekki með Ítölum í dag
Candreva verður ekki með Ítölum í dag
Mynd: Getty Images
Ítalía hefur staðfest það að Antonio Candreva muni ekki spila á morgun gegn Spánverjum.

Candreva hefur verið að glíma við meiðsli aftan í læri og missti meðal annars af lokaleik Ítalíu í riðlakeppninni gegn Írlandi.

Antonio Conte, þjálfari Ítalíu, hristi upp í liðinu fyrir leikinn gegn Írlandi, en Candreva hafði byrjað fyrstu tvo leikina sem vængbakvörður hægra megin.

Búist er þó við að Gianluigi Buffon verði mættur aftur markið hjá Ítalíu á morgun eftir veikindi.

„Ég finn til með Candreva," sagði liðsfélaginn Andrea Barzagli. „Við vitum allir hvað hann getur, en við erum með 23 manna hóp."
Athugasemdir
banner
banner