Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 26. júní 2016 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dybala: Pogba verður áfram hjá Juventus
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Paulo Dybala er vongóður um það að Paul Pogba hafni tilboðum annars staðar frá og verði áfram hjá Juventus.

Juventus varð tvöfaldur meistari á Ítalíu og Pogba hefur verið sterklega orðaður við brottför frá félaginu.

Dybala er þó vongóður um það að Pogba verði áfram hjá Juve.

„Pogba verður áfram hér," sagði Dybala.

„Ég hef rætt við hann og ég trúi því að hann verði hér áfram. Við töluðum ekki saman um fótbolta, en ég hef trú á því að þetta verði niðurstaðan."
Athugasemdir
banner
banner
banner