Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   sun 26. júní 2016 16:29
Magnús Már Einarsson
Nice
Hodgson ráðlagði Rooney að svara ekki spurningu
Icelandair
Wayne Rooney.
Wayne Rooney.
Mynd: Getty Images
Þýskur fréttamaður spurði á fréttamannafundi enska landsliðsins síðdegis í dag hvort einhver vandamál væru á milli Wayne Rooney og Jamie Vardy.

Rebbekah Vardy, eiginkona Jamie, hefur verið áberandi í enskum fjölmiðlum í kringum mótið og einhverjir fjölmiðlar segja að Rooney hafi áhyggjur af því hversu mikið hún sé að tjá sig í fjölmiðlum og á samskiptamiðlum.

Roy Hodgson, landsliðsþjálfari Englendinga, greip inn í eftir spurninguna og þvertók fyrir að einhver vandræði séu á milli Rooney og Vardy.

„Ég hef ekki hugmynd um hvað þú ert að tala um," sagði Hodgson eftir að spurningin var borin fram á fréttamannafundi.

„Það eru alls engin vandamál á milli Jamie Vardy og Wayne Rooney. Það er í raun akkúrat öfugt, þeir eru góðir felagar innan og utan vallar. Ég vil ráðleggja Wayne Rooney að tjá sig ekki um þetta."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner