„Þetta er eitt af stærstu afrekum íslenskrar íþróttasögu að ég held," segir Jón Daði Böðvarsson, sóknarmaður íslenska landsliðsins, í viðtali við UEFA en það má sjá í spilaranum hér að ofan.
Hann er þar að fara yfir sigurinn gegn Austurríki sem tryggði Íslandi leik gegn Englandi í 16-liða úrslitum á morgun.
„Þetta verður lengi í sögubókunum," segir Jón Daði sem hrósar stuðningsmönnum Íslands í viðtalinu.
„Maður fær gæsahúð fyrir hvern einasta leik, stuðningsmennirnir gefa manni aukinn kraft og adrenalín sem gerir mann að betri leikmanni."
Leikurinn gegn Englandi verður í Nice annað kvöld klukkan 19 að íslenskum tíma.
„Maður ólst upp við að horfa á enska boltann heima á Íslandi. Maður ólst upp við að halda með Englandi á öllum þessum stórtmótum. Það er smá fyndið og sérstakt að mæta þessu liði í 16-liða úrslitum. Það hlakkar öllum til," segir Jón Daði.
„Englendingar spila boltanum mjög hratt á milli sín og eru með mjög snögga einstaklinga. Það eru mikil gæði í þeirra liði og við verðum að ná upp góðri vörn og aga. Við þurfum að spila okkar leik og þá veit maður aldrei með úrslitin."
„Við viljum ná lengra og halda áfram að skrifa söguna."
Sjáðu viðtalið í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir