Wayne Rooney, framherji enska landsliðsins, var spurður út í Gylfa Þór Sigurðsson á fréttamannafundi í Nice nú síðdegis.
Rooney og Gylfi mætast á morgun í leik Englands og Íslands í 16-liða úrslitum EM.
Rooney og Gylfi mætast á morgun í leik Englands og Íslands í 16-liða úrslitum EM.
„Ég vil ekki tala of mikið um hann en hann er stórkostlegur leikmaður," sagði Rooney á fréttamannafundi í dag.
„Hann hefur verið frábær undanfarin ár. Hann getur skorað mörk úr föstum leikatriðum og úr opnum leik."
„Við þurfum að passa upp á hann og verjast vel. Við erum samt að einbeita okkur að öllu liðinu en ekki einum leikmanni,"
Athugasemdir