sun 26. júní 2016 18:30
Magnús Már Einarsson
Nice
Rooney: Mistök að efast um hugarfar Sterling
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Raheem Sterling hefur ekki náð sér á strik á EM og Englendingar hafa sett spurningamerki við hugarfar hans.

Wayne Rooney, fyrirliði Englendinga, kom Sterling til varnar á fréttamannafundi í dag fyrir leikinn gegn Íslandi á morgun.

„Hugarfar hans er í lagi. Hann hefur verið frábær á æfingum þar sem hann hefur tekið leikmenn á og skorað mörk," sagði Rooney.

„Það hefur aldrei verið hægt að efast um hugarfar hans. Hann æfir aukalega eftir æfingar.

„Hann er mikilvægur fyrir liðið þvi hann er frábær leikmaður sem getur breytt leikjum á sekúndubroti. Ef einhver er að efast um hugarfar hans þá eru það mistök."


Fótbolti.net er með öflugt teymi á Evrópumótinu og færir ykkur fjölmargar fréttir daglega. Einnig er fylgst grannt með gegnum helstu samskiptamiðla.
- Vertu með okkur á Twitter með því að nota kassamerkið #fotboltinet fyrir færslur um mótið.
- Fótbolti.net á Snapchat: Fotboltinet
- Fótbolti.net á Instagram: Smelltu hér til að sjá .Net á Instagram.
Fótbolti.net á Facebook: Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook.

FARÐU Á EM SÍÐU FÓTBOLTA.NET
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner