Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 26. júní 2016 16:19
Magnús Már Einarsson
Rooney: Við berum virðingu fyrir Íslandi
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Wayne Rooney vill ekki meina að meiri pressa sé á Englendingum á morgun gegn Íslandi heldur en í öðrum leikjum.

Rooney var spurður að því á fréttamannafundi sídðegis í dag hvernig pressan sé á Englandi fyrir leikinn gegn Íslandi en hann var minntur á að mun færri búa á Íslandi heldur en í Liverpool þar sem hann ólst upp.

„Það er pressa í öllum leikjum. Ísland hefur staðið sig vel í þessu móti og það er erfitt að brjóta þá á bak aftur. Við þurfum að vera upp á okkar besta," sagði Rooney.

„Við þurfum að færa boltann hratt og nýta færin. Við berum virðingu fyrir Ísland og því sem þeir hafa gert í mótinu."

„Íbúafjöldi landsins er bara tala. Þeir hafa jafnmarga leikmenn inni á vellinum og við. Þetta er sanngjarnt að því leytinu til. Við þurfum að spila okkar leik og hugsa ekki of mikið um Ísland. Við erum vongóðir um að geta unnið Ísland ef við gerum það."


„Ísland er með góðan hóp. Ég vil ekki taka neinn leikmann út en þetta eru góðir leikmenn sem vinna vel fyrir hvorn annan. Það eru engar ofurstjörnur í hópnum. Það er frábært vinnuframlag í liðinu og þeir reyna að gera erfitt fyrir andstæðinginn."

Fótbolti.net er með öflugt teymi á Evrópumótinu og færir ykkur fjölmargar fréttir daglega. Einnig er fylgst grannt með gegnum helstu samskiptamiðla.
- Vertu með okkur á Twitter með því að nota kassamerkið #fotboltinet fyrir færslur um mótið.
- Fótbolti.net á Snapchat: Fotboltinet
- Fótbolti.net á Instagram: Smelltu hér til að sjá .Net á Instagram.
Fótbolti.net á Facebook: Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook.

FARÐU Á EM SÍÐU FÓTBOLTA.NET
Athugasemdir
banner
banner
banner