Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 26. júní 2017 14:00
Magnús Már Einarsson
Bournemouth ætlar að landa Ake
Mynd: Getty Images
Forráðamenn Bournemouth eru bjartsýnir á að ná að landa Nathan Ake varnarmanni Chelsea í sumar.

Ake var á láni hjá Bournemouth fyrri hlutann á síðasta tímabili.

Bournemouth reyndi að kaupa Ake í janúar en Chelsea vildi ekki selja þá.

Talið er að Chelsea sé tilbúið að selja Ake í sumar en verðmiðinn verður hins vegar að minnsta kosti 20 milljónir punda

Leicester og Southampton hafa líka áhuga á Ake en Bournemouth er hins vegar í bílstjórasætinu í baráttunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner