Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 26. júní 2017 22:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Efete fer frá Breiðabliki eftir næsta leik
Efete er á förum frá Blikum.
Efete er á förum frá Blikum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Michee Efete mun fara frá Breiðabliki eftir næsta leik, sem er gegn Íslandsmeisturum FH.

Þetta staðfestir hann á Twitter í kvöld.

Efete kom til Blika í byrjun maí á láni frá Norwich, en hann hefur staðið sig virkilega vel í hjarta varnarinnar hjá Kópavogsliðinu.

Hann stóð vaktina í kvöld er Breiðablik gerði markalaust jafnefli gegn spútnikliði Grindavíkur í Pepsi-deild karla.

Efete er á leið aftur til Norwich, en hann hefur verið í kringum aðalliðið þar. Norwich er í Championship-deildinni á Englandi.

Næsti leikur Blika, gegn FH, er eftir viku.

Talið er að Elfar Freyr Helgason muni snúa aftur í lið Breiðabliks þegar félagsskiptaglugginn opnar 15. júlí. Hann kláraði tímabilið í Danmörku með Horsens, en danska félagið nýtti sér ekki forkaupsrétt á honum.





Athugasemdir
banner
banner
banner
banner