Áttundu umferðinni í Inkasso-deildinni lauk á laugardaginn. Fylkismenn eru einir á toppnum eftir 2-0 sigur á Selfyssingum. Albert Brynjar Ingason skoraði tvö þar og Ásgeir Börkur Ásgeirsson átti einnig góðan dag á miðjunni.
Leiknir Fáskrúðsfirði vann öflugan 3-2 sigur á Þrótti en um var að ræða fyrsta tap Þróttar síðan í fyrstu umferð. Kristinn Justiniano Snjólfsson skoraði tvö mörk og átti þátt í því þriðja fyrir Leikni en Viktor Jónsson skoraði bæði mörk Þróttar.
Marc McAusland og Frans Elvarsson voru bestir í liði Keflavíkur sem lagði Þór á heimavelli.
Reynir Már Sveinsson bar af í sigri HK á Haukum og þeir Dino Gavric og Alex Freyr Elísson voru bestir í liði Fram í sigri á Gróttu.
Halldór Kristinn Halldórsson var maður leiksins í markalausu jafntefli Leiknis R. og Hauka en þar átti Trausti Sigurbjörnsson góðan dag í markinu.
Sjá einnig:
Lið 7. umferðar
Lið 6. umferðar
Lið 5. umferðar
Lið 4. umferðar
Lið 3. umferðar
Lið 2. umferðar
Lið 1. umferðar
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir