Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 26. júní 2017 10:21
Magnús Már Einarsson
Liverpool vill fá Mbappe
Eftirsóttur.
Eftirsóttur.
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur áhuga á Kylian Mbappe, framherja Mónakó en Sky Sports greinir frá þessu í dag.

Hins vegar er óvíst hvort að Mbappe hafi áhuga á að fara til Englands.

Hinn 18 ára gamli Mbappe sló í gegn með Mónakó síðastliðinn vetur en talið er að hann verði dýrasti leikmaður sögunnar ef hann fer annað í sumar.

Real Madrid er í bílstjóraæstinu í baráttunni um Mbappe en Liverpool hefur nú ákveðið að blanda sér í baráttuna.

Samkvæmt fréttum frá Frakklandi hefur Mbappe hafnað nýjum samningi hjá Mónakó með 900% launahækkun. Mbappe hefði hækkað þá úr 16 þúsund pundum í laun á viku upp í 140 þúsund pund.
Athugasemdir
banner
banner
banner