Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 26. júní 2017 14:30
Elvar Geir Magnússon
Mourinho minnist föður síns
Mynd: Getty Images
Faðir Jose Mourinho, Felix, er látinn 79 ára að aldri.

Mourinho minntist föður síns á Instagram með því að birta svart/hvíta mynd af þeim feðgum saman fyrir mörgum árum.

Jose Manuel Mourinho Felix hét faðir Jose Mourinho fullu nafni en hann lék 250 leiki sem markvörður fyrir Vitoria og Belenenses í Portúgal. Hann náði að leika einn landsleik fyrir Portúgal.

Belenenses sendi Jose Mourinho og fjölskyldu samúðarkveðjur á heimasíðu sinni.

Jarðarförin mun fara fram í Setubal í Portúgal á morgun.

A post shared by Jose Mourinho (@josemourinho) on


Athugasemdir
banner
banner