banner
   mán 26. júní 2017 23:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vidal lítið hrifinn af Ronaldo - „Hann er ekki til fyrir mér"
Vidal er ekki mikill Ronaldo-maður.
Vidal er ekki mikill Ronaldo-maður.
Mynd: Getty Images
Arturo Vidal, miðjumaður Bayern München, er alls ekki hrifinn af Cristiano Ronaldo, sem er af flestum talinn annar af tveimur bestu leikmönnum heims með Lionel Messi.

Vidal og liðsfélagar hans í landsliði Síle mæta Ronaldo og hans mönnum í Portúgal í undanúrslitum Álfukeppninnar í Rússlandi.

Vidal er mjög sigurviss fyrir leikinn, en hann sagði blaðamönnum einnig frá áliti sínu á Ronaldo.

„Cristiano er hálfviti," sagði Vidal þegar hann talaði við blaðamenn í Rússlandi. „Fyrir mér þá er hann ekki til."

„Ég hef nú þegar sagt Joshua Kimmich, liðsfélaga mínum hjá Bayern að við munum hittast í úrslitaleiknum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner