Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 26. júlí 2014 12:40
Eyþór Ernir Oddsson
Heimild: Soccerway 
Cazorla ánægður hjá Arsenal
Santi Cazorla.
Santi Cazorla.
Mynd: Getty Images
Santi Cazorla, leikmaður Arsenal, blæs á þær sögusagnir í fjölmiðlum að hann vilji yfirgefa félagið og segist ánægður í herbúðum Arsenal.

Spánarmeistarar Atletico Madrid eru taldir vera á höttunum á eftir Cazorla, en hann kom til Arsenal fyrir tveimur árum.

,,Mér líður vel. Ég er mjög ánægður með að spila fyrir Arsenal og liðið er núna sterkara með nýjum leikmönnum og ég vona að við vinnum titilinn fyrir stuðningsmenn."

,,Ég býst við góðum hlutum af okkur, mér finnst við hafa betra lið en í fyrra. Við höfum gert góð kaup í sumar og mér finnst að meira sé á leiðinni svo að vonandi munum við eiga sterkt tímabil."



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner