Heimild: manutd.com
Darren Fletcher, miðjumaður Manchester United vill að liðið byggi á frábærri byrjun liðsins á undirbúningstímabilinu þegar þeir mæta AS Roma í dag.
United fóru hamförum gegn LA Galaxy og lögðu þessa fyrrum lærisveina David Beckham 7-0. Fletcher spilaði 90 mínútur í leiknum.
,,Það eru mikil gæði í andstæðingum okkar í þessu ferðalagi. Þetta er frábær keppni. Roma er topp lið sem endaði í öðru sæti á Ítalíu á síðasta tímabili, svo að við virum að þetta verður erfiðara og skref upp á við. Þetta var frábær úrslit í LA, svo að gerum það aftur gegn Roma," sagði Fletcher brattur.
Fletcher var einnig hrifinn af nýja leikmanni Man Utd, Ander Herrera, sem þótti spila vel í leiknum og vakti mikla athygli.
,,Mér fannst hann frábær, hann var fullur af orku og lagði sig allan fram. Hann skipti um hlutverk í fyrri hálfleik, spilaði dýpra en í seinni spilaði hann framar með frábærum stoðsendingum. Ég held hann eigi eftir að vera frábær fyrir Man Utd. Vonandi verður mikið af því sama frá honum."
Athugasemdir