Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 26. júlí 2014 11:15
Eyþór Ernir Oddsson
Heimild: LFC Tour 
Fowler hitti dauðvona stuðningskonu Liverpool
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Diane Inder er kona sem kemur frá Liverpool en býr í Ástralíu. Hún var í stóru ferðalagi þar sem átti að horfa á Liverpool liðið spila en upp komu skyndileg veikindi hjá henni.

Hún er nú í öndunarvél innan við fimm dögum eftir byrjunina á því sem átti að verða besta frí lífs hennar.

Robbie Fowler gaf sér tíma til að hitta þessa dyggu stuðningskonu Liverpool sem er í stífri lyfjameðferð á spítala, en fyrir það er maður hennar (Barry) þakklátur.

,,Við áttum svo frábæra byrjun á fríi okkar. Við áttum miða á alla leikina. Þetta var 59 ára afmæli Diane á sunnudeginum og ég vildi sinna henni vel," sagði Barry.

,,Við hittum Robbie fyrir utan Liverpool búð á þriðjudeginum og á þeim degi hittum við aftur Robbie með Ian Rush. Ég var að tala við Robbie um að fá áritun á tombólu hluti ætlaða til góðgerðarmála þegar Diane sagði að henni liði ekki vel og vildi fara upp á hótel."

,,Þetta gerðist allt á hótelinu og ég trúi þessu ekki núna. Adam sonur okkar er í loftinu núna að fljúga frá Ástralíu til að koma hingað og sjá móður sína."

,,Stuðningurinn sem við höfum fengið frá Liverpool aðdáendum um allan heim hefur verið ótrúlegur og það er okkur mikils virði að Robbie hafi komið í dag. Fólk segir mér að við erum öll stór fjölskylda og það er rétt hjá þeim."

,,Ég bjó alltaf hinum megin við hornið þar sem Robbie var fæddur og hann hjálpaði mikið með því að koma og tala við Diane. Ég er ekki viss um að hún heyrði hvað hann sagði við hana en hún er í stífri lyfjameðferð en hann vildi tala við hana og segja henni að hugur klúbbsins væri hjá henni og að hún komist í gegnum þetta."

,,Þegar hann sagði þetta vissi ég að jafnvel þó við værum þúsundum mílna frá heimilinu okkar erum við aldrei ein."

Athugasemdir
banner
banner
banner