Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 26. júlí 2016 09:10
Magnús Már Einarsson
Arnautovic á leið til Everton
Mynd: Getty Images
Everton er við það að kaupa Marko Arnautovic frá Stoke samkvæmt fréttum frá Austurríki.

Arnautovic á ár eftir af samningi sínum hjá Stoke en hann er með klásúlu í samningi sínum um að mega fara á 12,5 milljónir punda.

Everton ætlar að nýta sér það og kaupa Arnautovic í sínar raðir. Stoke gæti notað peninginn sem fæst fyrir Austurríkismanninn til að styrkja sig ennþá frekar.

Mark Hughes, stjóri Stoke, er á fullu á leikmannamarkaðinum þessa dagana en í gær kom Joe Allen frá Liverpool á 13 milljónir punda og kantmaðurinn Ramadan Sobhi frá Al Ahly.

Stoke er einnig að reyna að fá framherjann Saido Berahino frá WBA og peningarnir fyrir Arnautovic fara í að styrkja hópinn meira.
Athugasemdir
banner
banner
banner